Stutt og laggott
Ég er óþolinmóð að eðlisfari. Fylgir því held ég að vera ljón. Ég er núna til dæmis mjög óþolinmóð út í vigtina, hún lækkar ekki eins hratt og ég vil. En það stendur til bóta, bara 3 vikur í Fullfrísk!
Ég á ekki neitt. Ég á ekki neitt by choice og skulda þar af leiðandi ekki neitt. Ég veit samt ekki hvort ég eigi að drífa mig í að skipta um banka (aftur og einu sinni enn) því ég er í Glitni og líst ekki á blikuna því það pínulitla sem ég á er samt eitthvað.
Að lokum þá vil ég gefa út smá afkomuviðvörun fyrir sjálfa mig: Hef ákveðið að láta athuga með fæðingarþunglyndi því ég held að ég sé kominn yfir þennan normal blús og yfir í eitthvað aðeins alvarlega. Með mína sögu alla um þunglyndi held ég að það sé betra að byrja fyrr en seinna að tækla þetta og ég viðraði þetta einmitt við hjúkkuna sem kom heim í morgun að vigta ponsið. Hún ætlar að vísa mér í samtalsmeðferð og allir á heimilinu hjálpast að svo ég komist eitthvað út fyrir hússins dyr á hverjum degi. Eitt af einkennum míns þunglyndis er algjört og fullkomið áhuga- og framtaksleysi og ég vona að þessi samtalsmeðferð hjálpi til við að breyta því. Þar sem ég sef líka svo lítið er ég enn veikari fyrir andlega heldur en venjulega en mér er bara lífsins ómögulegt að sofna á daginn, finnst dagurinn nógu stuttur samt. Við vonum auðvitað að samtalsmeðferðin skili árangri og svo er líkamsrækt líka voðalega góð gegn þunglyndi þannig að vonandi get ég verið í henni í allan vetur (þó svo að fæðingarorlofið sé bara 6 mánuðir.. verð þá í amk 6 mánuði).
Þá vitið þið það.
EddaK
-afkomandi

0 whispers:
Sendu inn athugasemd