sunnudagur, nóvember 16, 2008

Kleina

Ég veit ekki hvað það er, en ég er orðin hundleið á öllu krepputali og eiginlega búin að loka á það í huganum. Í hausnum á mér leikur allt í lyndi og lífið gengur sinn vanagang.
Það er samt alveg nauðsynlegt á svona tímum að kunna að lyfta sér upp - og helst fyrir lítinn pening. Þess vegna fórum við hjónaleysin í ódýrustu myndatökuna sem við fundum á netinu í gær, að sjálfsögðu með einkaerfingjann með okkur. Við fórum til ljósmyndara hjá Barna - og fjölskyldumyndatökum í Kópavoginum og fannst þrusugaman. Að sjálfsögðu fannst Freydísi þetta vera einstaklega hentugur tími til að taka upp á því að slefa í fyrsta skiptið og að gleyma hvernig á að brosa, en við fengum samt pottþétt margar æðislegar myndir.
Við fórum í Kringluna í gær að skoða og það er allt fjólublátt. Hvað er málið með það? Í vor var allt fjólublátt í Kaupmannahöfn og núna hér - spurning um að taka þessu hinti og fjárfesta í fallega fjólublárri flík. Eða ekki.
Ég, Íris og Maggý skelltum okkur út í gær á Sólon og sátum frameftir að slúðra. Ég skildi Bjarna og Freydísi Helen eftir hjá Bigga og Ásdísi Kötlu - strákarnir spiluðu Playstation og gáfu pela þess á milli. Hefði örugglega verið gaman að vera fluga á vegg þar...
Við stelpurnar höfðum um nóg að tala, en þegar tónlistin fór að hækka og partýliðið að mæta létum við okkur hverfa. Held að það sé einstaklega mikilvægt fyrir mig að fara rólega af stað í öllu sem heitir djamm, annars gæti ég fengið ógeð áður en ég kemst almennilega af stað! Nei spaug ;) Nú er maður orðinn svo ferlega ábyrg húsmóðir sem hefur ýmsum þvotta - og tiltektartengdum skyldum að gegna, auk barnauppeldis, þannig að djammið hefur fallið niður um nokkra flokka. Hins vegar finnst mér mjög mikilvægt að maður fái að kíkja aðeins út og fá að vera maður sjálfur stundum þó svo að lífið sé breytt, því ekki má maður týna sjálfum sér. Því ef maður týnir sjálfum sér, hver á þá að leita??

EddaK
-ekki týnd.
 
//