Sjáiði bara!
Við kunnum líka að mótmæla.
Nú hljóta þingrotturnar að taka eftir:
http://politiken.dk/udland/article601628.ece
http://www.urban.dk/article/20081122/pcudland/811220351/
http://www.metroxpress.dk/dk/article/ritzau/2008/11/23/nrrr7lneqn108213/index.xml
http://www.bt.dk/article/20081123/nyheder/811230326/
Öll helstu dagblöð Danmerkur fjalla um mótmælin um helgina í netútgáfum sínum.
Breskum fjölmiðlum er hins vegar nett sama og fjalla frekar um pönduknús og x-Harry Potter aukaleikara sem snéru sér að vampírumyndum.
Heiminum ætti samt ekki að standa svona mikið á sama, það sem kemur fyrir okkur mun koma fyrir þau fyrr eða seinna. Íslenska hagkerfið er víst eins og vasaútgáfa af hagkerfum hins vestræna heims og allt sem fyrir okkur kemur er forsmekkurinn af því sem koma skal. Ef 2% þjóðarinnar myndu mótmæla í Danmörku myndu um 110 þúsund manns safnast saman á Ráðhústorginu og það er töluverður fjöldi. 2% íslensku þjóðarinnar söfnuðust saman í miðbænum á laugardaginn var og svo virðist sem ráðamenn hafi notað tækifærið og skellt sér í dekurdag í spainu. Að minnsta kosti voru þeir að gera allt annað en að svara spurningum og segja af sér, skilst mér. Skammarlegt að segja frá því að ég var ekki á staðnum. Reyni næst.
Þegar öllu er á botninn hvolft áttum við enga sök á því hvernig fór. Við trúðum bara í blindni og settum á Visa Rað.

0 whispers:
Sendu inn athugasemd