Nei bara svona ef þú varst að velta því fyrir þér...
Ég vona að allir hafi haft það gott yfir jólin og borðað á sig gat í síðasta sinn fyrir Raunveruleikann sem skellur á af öllu afli núna eftir áramótin. Raunveruleikann sem miðlar eins og mbl.is keppast við að mála í sem dekkstum litum. Ég ætla ekki að ræða kreppu eða svartsýnisbölv í þessari grein, heldur minna sjálfa mig á alla gleðina sem er í lífinu!
Freydís samdi sitt fyrsta tónverk um daginn. Bjarni sat með hana við píanóið og þar sem nýjasta nýtt hjá konunni er að slá í allt sem fyrir verður kom það nokkurn veginn af sjálfu sér að daman fór að slá í píanóið. Við náðum athæfinu á vídjó, og svo náði pabbi líka að kveikja á tónsmíðaforritinu í tölvunni sem er tengt við píanóið og nú eigum við fyrsta verkið hennar Freydísar skjalfest og útprentað! Geri aðrir betur, lítill snillingur hér á ferðinni!
Ég er búin að liggja á meltunni í svona viku núna og er alveg viss um að ég þurfi ekki að borða mikið fyrr en á næsta ári hreinlega. Þar sem nýtt ár hefst formlega á miðnætti annað kvöld þarf ég ekkert að svelta neitt voðalega lengi, en það er hugurinn sem gildir.
Ég er með áramótaannál í bígerð eins og alltaf og rembist eins og flekkótt rjúpa við lasinn girðingarstaur við að koma honum frá mér. Téður annáll mun vonandi birtast hérna öðru hvoru megin við helgina.
Við og Freydís fengum mikið af góðum gjöfum og segjum hér með takk fyrir okkur, gleðilega hátíð og hafið það sem best!
Það gengur ekkert að setja inn mynd af stubbnum, þannig að ég minni á kentish.barnaland.is , en þar má nálgast nýjustu myndirnar af ungfrúnni!
EddaK - afvelta.


0 whispers:
Sendu inn athugasemd