föstudagur, desember 12, 2008

Átak - update!

Jæja ég lofaði tölunum þegar jólamarkmiðið væri í höfn - því náði ég í morgun!!

Ok ég er skíthrædd við að setja kílóin mín inn þannig að ég ætla bara að sleppa því - set kílóamissi bara í staðinn ;)

Ég þyngdist um 24 kíló á meðgöngunni. Höfum það bara á borðinu. Bjúgur, sem og óbilandi trú á því að súkkulaðirúsínur og kók gætu læknað bjúg svona seinni part sumars þegar ég var hætt að hjóla, synda og labba svona mikið, höfðu heilmikið um það að segja.

Þegar ég kom heim af fæðingardeildinni var ég 7 kílóum fátækari en ég var í síðustu mæðraskoðuninni - þetta hlýtur að teljast nokkuð eðlilegt, enda heilt barn, legvatn, fylgja og töluvert af blóði búið að yfirgefa líkamann minn. 7 down, 17 to go.

Næstu daga á eftir yfirgáfu mig 3 kíló nokkuð hratt og svo 2 í viðbót aðeins hægar. Þessi frægu tólf "meðgöngukíló" runnu af mér, enda mín með ansskoti mikinn bjúg. 12 down, 12 to go.

Skömmu áður en ég kvaddi tólfuna ákvað ég að byrja að taka mig í gegn og byrja átakið mitt. Ákvað samt að miða allan kílóamissi við kíló umfram tólfuna.

Jólamarkmiðið mitt var að kveðja 8 kíló af þeim. Því náði ég í morgun!! 20 down, 4 to go!

Já ég er núna 20 kílóum léttari, og ómægod hvað ég er montin hehe... Föt farin að verða of stór og svona, og þökk sé mömmuleikfiminni er ég öll að verða sterkari, get hlaupið eins og vindurinn, stungið eins og býfluga og svitnað eins og mófó!

Ég byrjaði að mæla sentimetra á nokkrum stöðum 12. október og mæli einu sinni í viku. Á eftir að mæla eftir þessa viku, en hingað til er 31 sentimetri farinn sem ég er illa sátt við! Á eftir að fá niðurstöður úr seinni fitumælingunni en ég vonast til að vera búin að skafa svona 3% af mér :)

Mömmuleikfimin mín er til 19. desember. Ég er ekki búin að ákveða hvort að ég haldi áfram eftir áramót eða fari í ræktina sjálf með prógrammi og mánaðarlegri fitumælingu. Fer svolítið eftir veskinu bara.

Markmiðið fyrir jólin er að halda mér í þessari þyngd, geri mér engar vonir um að léttast yfir hátíðina - það væri nú bara ósanngjarnt að ætlast til þess af sjálfum sér.

Ég stefni á að vera búin að kveðja þessi 4 kíló sem eftir sitja í lok febrúar eða um miðjan mars og ætla svo að sjá hvort ég vilji léttast meira og þá hvað mikið.

Ég borða samt allt sem mig langar í, bara minna af því en áður, og hef svona einn "svindldag" í viku þar sem alveg allt má. Virkar fínt fyrir mig! Það eina sem er alveg alveg bannað er kók, hef ekki drukkið það síðan 4. sept takk fyrir þegar skvísan var vakandi til 6 um morguninn eftir koffínið, en er búin að ákveða að fá mér kannski eitt glas á aðfangadag. Er líka búin að komast að því að súkkulaði og skonsan mín eru ekki miklir vinir þannig að það verður eitthvað í takmörkuðu magni þessi jólin, sem er nú bara allt í lagi. Ég veit alveg hvernig það er á bragðið ;)

En jæja, þessi átekna mamma ætlar að skutlast í ból.

EddaK
-20kg og -31 cm
 
//