Merkileg helgi
Margt og mikið búið að gerast þessa helgi, og ekki er hún búin enn!
Fyrst fengum við myrkvunartjöldin í herbergið sem voru pöntuð í maí takk fyrir pent. Við erum með svona Velux þakglugga og það er hægt að kaupa einhver gluggatjöld sem eru alveg sérsniðin fyrir þessa glugga. Þeir voru samt ekki alveg að standa sig í stykkinu þarna hjá Byko, því fyrsta pöntun var aldrei send af stað því liturinn sem við vildum var ekki til - og við látin vita þegar við hringdum rúmum mánuði seinna til að athuga hvar í fj... gluggatjöldin væru. Næsta pöntun fór af stað en jólasveinarnir höfðu tekið niður vitlaust númer á glugganum þannig að tjöldin pössuðu ekki. Við þurftum að fá gæja frá Byko hingað niður eftir til að hjálpa okkur að losa helv... tjöldin. Svo loksins á föstudaginn komu tjöldin (við höfum ekki hugmynd um hvort það var liturinn sem við vildum, við vildum bara fá tjöld sem passa!) og upp fóru þau við mikinn fögnuð, enda við búin að sofa með álpappír og svarta ruslapoka sem hávær skýli fyrir birtunni síðan við komum heim í júní. Er bara mest fegin að tjöldin hafi komið á undan Lillu! ;)
Fórum í Kringluna (úfffff erfitt) síðdegis á föstudaginn og keyptum okkur Lavenderolíu og nuddkúlur og ég fékk þvílíku meðferðina um kvöldið! Elska lyktina af Lavender, tek þessa sko með upp á fæðingardeild þegar þar að kemur!
Fórum í bíó á Get Smart um kvöldið... ég hló svo mikið að ég hélt að barnið myndi fæðast á ganginum í bíó bara! Þetta var orðið erfitt í restina ;)
Í gær fór ég svo í fjölmennasta fimm ára afmæli sem sögur fara af! Litla frænka hans Bjarna átti sem sagt afmæli og við fórum og hittum fullt af fólki, sem er nú aldrei leiðinlegt, og fengum heita rétti að borða, sem er sko heldur aldrei leiðinlegt ;) Þetta heppnaðist mjög vel í alla staði og litla skottið alveg hæst ánægt með daginn skildist mér á foreldrunum :)
Úr þeirri afmælisveislu fórum við svo í óformlegt kaffi til Söru vestur í bæ þar sem Bjarni greyið mátti sitja undir umræðum um óléttu, fæðingar og þyngdaraukningu, enda ég, Sara og Ástrós að spjalla og þær báðar mömmur ... getið rétt ímyndað ykkur hvað hann var hress með það hehe...
Bjarni hafði verið tiltölulega bjartsýnn á að meika að fara í grill eftir afmælið hjá frænku sinni, en hætti snögglega við það þegar við fórum frá Söru, enda gjörsamlega að springa eftir veitingar dagsins ;) Hann fór því bara í póker heima hjá Bigga -sennilega í síðsta skiptið í bili hjá greyinu - og ég fór að horfa á Harry Potter (en ekki hvað ... ).
Í dag á svo að sótthreinsa herbergið, pakka ofan í spítalatöskuna og mögulega þrífa bílinn aftur, allt hvað við náum að gera. Eigum líka alltaf eftir að ná í himnasængina á rúmið fyrir prinsessuna. Ætluðum líka að reyna að kíkja á Þóru og Einar Geir, en ég er búin að vera með smá kvef þannig að ég þori nú eiginlega ekki að bjóða nýja unganum þeirra upp á það og það verður eflaust að bíða betri tíma. Nema ég sendi Bjarna sendiherra bara :)
Nú er aðal málið hvort prinsessan mæti fyrir eða eftir settan dag - amma Bjarna sagði í gær að það yrði nú örugglega farið að færast fjör í leikinn í nótt eða næstu nótt, við spyrjum bara að leikslokum! Myndi svo sem ekkert kvarta yfir því að fá hana aðeins fyrr í fangið (enda fræg fyrir óþolinmæði, jú og svo stundvís með eindæmum), en þetta kemur allt í ljós! Verð fyrst farin að örvænta á fimmtudaginn eftir viku held ég ;)
Sjáumst börnin góð... ekki vera feimin við að kíkja í heimsókn til mín á daginn, mér leiðist nefnilega stundum alveg óhóflega og ekki er orkunni mikið fyrir að fara til að kíkja mikið út þó að ég reyni að fara eitthvað á hverjum degi, fínt að fá nokkrar heimsóknir líka ÁÐUR en litlan kíkir á okkur ;)