þriðjudagur, september 23, 2008

Sængurkvennadrama

Eftir að við komum heim af fæðingardeildinni hef ég fellt eitt eða tvö tár, svona eins og eðlilegt þykir á meðan hormónabúskapur er að jafna sig. Í fyrradag keyrði hins vegar gjörsamlega um þverbak þegar ég horfði á mynd sem heitir P.S. I Love you. Myndin er svona temmilega sorgleg, klútamynd eins og þær voru kallaðar hérna í gamla daga, en ekkert mikið meira en gengur og gerist. En bíddu nú hægur Gvendur minn. Ég var gjörsamlega hriplek frá upphafi til enda og myndaði straum af tárum sem fleyttu mér nánast fram úr sófanum með barnið í fanginu. Mæli því ekki með áhorf þessarar myndar hjá nýbökuðum mæðrum eða neinum með hormónabúskapinn í einhverju ólagi, nema þá helst að Kleenexið sé við höndina by the case. Svo skældi ég líka ótæpilega í gær þegar ég fann ekki heyrnatólin mín, en þó ekkert í líkingu við áðurnefndan stórfljótagrátur. Þessi mynd kom mér vægast sagt úr öllu jafnvægi hratt og örugglega og eftir að henni var lokið og ég orðin mjög þreytt og þrútin til augnanna varð ég enn vælnari eftir að ég komst að þeirri niðurstöðu að þessi grátur væri kannski eitthvað einum of. Sunnudagsins verður því hér eftir minnst sem grátdagsins mikla.

Mig langar í aðra röndina að skrifa bók. Spurning samt hvort ég finni útgefanda sem væri til í að gefa út skáldsögu eftir mig á ensku... ? Fæ alltaf bestu hugmyndirnar mínar þegar ég er að fara að sofa og fékk eina þrælgóða í gær og var búin að hrista fram nokkrar gullnar setningar í huganum þegar ég sofnaði, og vitaskuld eru þær allar gleymdar í dag. Því er nú ver og miður, því þetta hefðu getað orðið Ódauðlegu setningarnar, með stóru ó-i. Alas, næst verð ég með blað og blýant við rúmstokkinn til þess að tryggja að þegar andinn kollsteypist yfir mig að hann rati út úr hausnum á mér og í haldbærara form.

EddaK
- búin með tárakvótann

P.S. ... I love you (nei bara djók) - las einhver greinina í einhverju blaðinu hér um daginn að Shakespeare hefði verið Arabi? Það er amk. eitthvað mj. frumlegt leikrit á fjölunum í London sem gengur út frá því að Shakespeare hafi verið Sjeik í þorpinu Spír einhvers staðar í miðausturlöndum og leikrit hans Ríkharður III stílfært og nútímafært til þess að sanna í eitt skipti fyrir öll að svo sé. Mig langar að fara. Hver er með? Getum farið á Músagildruna og Les Miserables í leiðinni... og farið svo á pöbbinn og fengið okkur öl. Er alveg viss um að ég geti reddað pössun í fimm daga... ;)

fimmtudagur, september 18, 2008

Inn og út um gluggann

Inn:
Ponsið
Kristall plús með appelsínu - og blóðappelsínubragði. Jömm-í!
Rauð epli
Brauð með kæfu
Konsum suðusúkkulaði
Síðdegislúrar
Snickers
Bleyjuskipti
Söngl
Göngutúrar (þó þeir séu enn fáir)
visir.is (færri stafsetningarvillur en á mbl.is)
Fjesbók
Knús
Liggja á maganum
Sería 11 af ANTM
Gleði
Hamingja
Lífið

Út:
Kók, bæði læt og alvöru
Gulrótarkökur, óverdósaði á þeim í síðustu viku
Slit
Myrkur (fylgir víst haustinu, sel það ekki dýrara en ég keypti það)
Verkjatöflur, alveg komin með ógeð. Gera þó sitt gagn þannig að þær eru ekki alveg út.
Óhreinn þvottur
Blogg sem hafa ekki verið uppfærð lengi (mér finnst gaman að lesa um vini mína, á erfiðara með að hringja, vissulega skrýtið?)
MSN vírusar. Treysti á að ég verði látin vita ef einn slíkur fer að koma frá mér!
Illa skrifaðar fréttir á mbl.is
Verðlag í heiminum
Stríð
Fátækt
Neyð


Hvað væri á þínum lista?

EddaK
- og alltaf sömu leið


föstudagur, september 12, 2008

Ég var að hugsa um það á daginn hvað þetta bar allt saman snöggt að (þá er ég að tala um komu erfingjans). Vissulega var hún búin að vera 9 mánuði í bökun þegar hún mætti, en það sem mér finnst svo merkilegt er að ég og Dagný sátum ekki 12 tímum áður en vatnið fór að sleikja sólina á Óliver, nýbúnar í plokkun og litun! Sýnir bara og sannar hvað lífið getur verið óútreiknanlegt :)

Ég hef nú ekki mikið til að pirrast yfir þessa dagana, en blaðamennskan á mbl.is er vissulega eitt af því sem getur farið í taugarnar á mér. Í fyrsta lagi eru 90% fréttanna neikvæðar heimsendafréttir (gjaldþrot, ofbeldi, stríð, neyð og þar fram eftir götunum). Í öðru lagi eru fréttirnar skrifaðar á einhverju allt öðru en kjarnyrtri íslensku á stundum. Ekki misskilja, allt í lagi þegar hinn venjulegi maður stingur niður stafsetningar- eða málfarsvillu hér og þar, en slíkt á bara ekki heima á svona stórum og virtum fréttamiðli, só sorrí (pun intended). Tökum dæmi:

Úr fréttinni "Danir spara við sig í mat" frá deginum í dag er að finna eftirfarandi setningu:
,,Áður keyptu margir kíló og hentu afganginum í ruslið eða í frystirinn''
Sjáið þið villurnar? Þær eru tvær.
Kíkjum aðeins betur:
,,Áður keyptu margir kíló og hentu afganginum í ruslið eða í frystirinn''
Ég veit það ekki, þegar ég var að læra íslensku var mér kennt að rétt beyging á orðinu afgangur með ákveðnum greini í þágufalli væri afgangnum og að frystir í þolfalli með greini væri frystinn. Ekki satt?
Svona myndi ég því hafa þetta:
,,Áður keyptu margir kíló og hentu afgangnum í ruslið eða frystinn''.

Æji maður er svo smámunasamur þegar maður er svona heima að knúsa lítið Pínupons ;)
Ætla að halda áfram að knúsast í familíunni og þefa uppi málfars- og stafsetningarvillur á mbl.is ...
Bless á meðan ;)
EddaK
-Knúsar og knúsar...

PS: Ég ligg á maganum uppi í rúmi í fyrsta sinn í allavega sjö mánuði og er alveg að ELSKA það ;) Ekki spillir fyrir að ponsið og maðurinn liggja hjá mér og við höfum það ofsa kósí :)

mánudagur, september 08, 2008

Lítið í fréttum

Óhætt að segja það, við erum bara inni að kúra með ponsinu :)
Ég er annars búin að skrá mig á Fullfrísk námskeið og get ekki beðið eftir að byrja. Byrja ekki fyrr en 20. október samt og þá förum við Pons saman í ræktina þrisvar í viku sem verður megasúperæði. Verðum sko komnar í kjólinn fyrir jólin og ekkert minna!
Ég og Bjarni fengum að skjótast tvö saman í einn burger á Búllunni núna á föstudaginn og mikið var það gott - og skrýtið. Hefði aldrei trúað því, en þegar maður er búinn að ganga með lítinn kropp í heila 9 mánuði og skilur hann svo bara eftir einhvers staðar er tilfinningin næstum eins og að gleyma öllum vinstri fætinum heima. En túrinn gerði okkur gott og ömmu og afa fannst nú ekkert leiðinlegt að passa...

Þetta er sem sagt það markverðasta sem hefur gerst hjá mér síðustu daga, Pons-fréttir eru á barnalandi ;)

Knús
EddaK
-enn með alla vinstri fætur

fimmtudagur, september 04, 2008

Prinsessan okkar komin

Hún mætti 2. september eftir 39 vikur og 4-5 daga meðgöngu, klukkan 10:04. Smá drama fylgdi þessu en öllum heilsast ljómandi vel og við erum stoltust í heimi :) Fæðingarsagan er á barnalandssíðunni.

Knús knús
litla kjarnafjölskyldan :)

mánudagur, september 01, 2008

Nú er ég svo aldeilis...

... rasandi bit! Ekki enn búið að semja við ljósmæður og verkföll yfirvofandi. Ég veit það ekki, ég hefði kannski betur átt stelpuna bara úti í Danmörku fyrst þessi blessaða ríkisstjórn er tilbúin til að taka áhættuna fyrir okkur óléttu sem erum settar í kringum verkföll og hreinlega traðka á hámenntafólkinu sem tekur á móti börnunum.. Hneyksl.

En að öðru.
Settur dagur nálgast - sá sniðugt á öðru bloggi sem mig langar að prófa! Hvernig væri að allir myndu nú bara giska á hvenær daman mætir? Ég skal byrja! Giska á að hún komi 08.09.08 :) (Þá er nefnilega ekki verkfall hehe.. )
Endilega vera með og stytta mér pínu stundirnar ;)
 
//