fimmtudagur, janúar 22, 2009

Ég á gamla frænku sem heitir Ingeborg...


... við eftir henni hermum er við göngum niðrá torg!
Og svo slettist skyrið, og skyrið slettist svo,
og svo slettist skyrið, og skyrið slettist svo!

Ég á gamla frænku sem heitir Ingeborg
við eftir henni hermum er við göngum niðrá torg!
Og svo flæðir gasið, og gasið flæðir svo,
og svo flæðir gasið, og gasið flæðir svo!

Ég á gamla frænku sem heitir Ingeborg
við eftir henni hermum er við göngum niðrá torg!
Og svo kviknar bálið og bálið kviknar svo,
og svo kviknar bálið, og bálið kviknar svo!

Ég á gamla frænku sem heitir Ingeborg
við eftir henni hermum er við göngum niðrá torg!
Og áfram situr stjórnin og færist ekki fet,
og áfram situr stjórnin og færist ekki fet!


Ég á annars lítinn spriklara sem var að fá barnasæti. Þegar það er matartími hjá okkur fullorðna fólkinu fær hún að setjast í barnasætið sitt og spriklar á fullu og svoleiðis starir á okkur borða og sýgur neðrivörina í leiðinni. Hún fær kannski bráðum að fá graut svo hún geti hætt að öfunda okkur af fullorðinsmatnum.
Hún fór líka í sund með okkur um daginn og smakkaði vatnið alveg linnulaust, fannst það ekki slæmt heldur.


Ég hef svo lítið að segja. Vissulega skrýtið þegar maður situr heima meira og minna allan daginn með ungbarn. Ég er samt búin að fá að fara í skólann, í Ikea og í ræktina skammlaust og stekk hæði mína af gleði um leið og ég má fara út í rokið og hálkuna.
Rok og hálka er ekki gott kombó þegar maður á leið um bílastæðið við Egilshöll get ég sagt ykkur, er að íhuga að mæta með ísöxi og klifurbúnað næst þegar ég þarf að fara þarna yfir og leggjast flöt á jörðina og toga mig áfram yfir skautasvellið (og þá er ég ekki að tala um skautasvellið inni í húsinu... ).

Er að spá í hvort ég eigi að hætta að blogga - það eru allir á Facebook þessa dagana og enginn skoðar blogg lengur. Atkvæði?

EddaK
- lengi lifi byltingin mínus allt skyr.
 
//