Þetta finnst mér mjög merkilegt. Þó svo að þetta hafi verið birt á Perez. Og ég verð að viðurkenna að ég veit alveg hvað er verið að tala um! Síðan ég byrjaði að nota MySpace og Facebook hef ég einangrast meira og meira og verð liggur við meira einmanna með hverjum mánuðinum sem líður. Maður talar við fólk, jú, en núna virðist félagslíf manns einskorðast við það hversu mörg komment maður fær - á facebook, á blogginu, á MySpace, og hversu mörg skjótskilaboð maður fær á MSN, á Facebook, á Skype og what have you.
Man að mamma böggaði mig heilmikið á því hvað ég talaði mikið við fólk á MSN. Eins mikið og ég vil ekki viðurkenna það, þá neyðist ég til þess - the woman was bloody right on the money!
Ég sakna þess rosalega að hitta fólk face to face. Við erum að tala um að allan febrúar held ég að ég sé búin að hitta vinkonur kannski tvisvar - þrisvar. Hversu sad er það?
Ég legg til að við reynum að rækta meira samband við hvert annað augliti til auglitis! Facebook og svona er alveg gott og blessað til að halda sambandi við fólk sem maður sér sjaldan en ef maður er farinn að spjalla meira við bestu vini sína á Facebook heldur en augliti til auglitis er kominn tími til að breyta einhverju!
EddaK
- vill fá eitthvað meira en cyberknús!

0 whispers:
Sendu inn athugasemd