miðvikudagur, mars 25, 2009

Heimilið í Höfn

Jibbý! Við erum komin með íbúð úti í Köben - mission accomplished :) Við skráðum okkur á leigusíðu í lok febrúar og vorum búin að sigta 2 aðrar íbúðir út, og fá neitun, áður en þessi datt inn á borð hjá okkur. Hún er reyndar allt allt ALLT annars staðar en við ætluðum upphaflega að flytja, og ég verð að viðurkenna að það truflaði mig pínupons þegar við sóttum um hana, en þessi íbúð er með þvottavél, þurrkara, uppþvottavél, húsagarði, barnaherbergi, nýuppgerðu eldhúsi, baði, nýuppteknu gólfi, stórri geymslu og frábærum leigusala :) Og maður getur bara ekki horft framhjá svoleiðis flottheitum þó svo að hverfið sé vitlaust ;) Svo spillir nú ekki fyrir að eitt best geymda leyndarmál Kaupmannahafnar, Valbyparken, er alveg í túnfætinum. Lestarstöðvar eru spottakorn í burtu og ágætis strætósamgöngur líka. Nágrannarnir eru, samvkæmt leigusalanum, eitt par um 35 ára (fyrir ofan okkur), einhleyp kona um fimmtugt (fyrir neðan okkur) og barnafjölskylda (við hliðina á okkur) þannig að þetta er rólegt og fínt.

Hverfið heitir Kongens Enghave formlega, en er í daglegu tali kallað Sydhavn. Það var reist í kringum seinna stríð sem verkamannahverfi, og enn þann dag í dag býr mikið af vinstri sinnuðu fólki þarna. Nú er verið að vinna að því að breyta hafnarmyndinni þarna, áður voru þarna margar verksmiðjur sem nú standa auðar að mestu leyti, og það er verið að reisa bryggjuhveri þarna sem er langt komið.
Hverfið líður fyrir það að vera skorið í sundur af nokkrum umferðaræðum, þannig að það er ekki svona community fílingur þarna eins og í mörgum öðrum hverfum í Kaupmannahöfn, en maður verður þá bara duglegur að leita uppi hverfishátíðir í öðrum hverfum ;) Hverfið er líka svolítið einangrað, umferðaræðarnar umlykja það á tvo vegu og Valbyparken og svo sjórinn á heilli hlið og það er hluti af ástæðu fyrir að communityfílingurinn er ekki til staðar. Aftur á móti virðast íbúar í sömu húsum og jafnvel sömu götum oft halda vel saman.
Hlutfallslega eru mjög margir eldri borgarar og "fortidspensionister" (fólk sem fer snemma á eftirlaun af einhverjum ástæðum) sem búa í þessu hverfi, sem eykur enn á rólegheitin. Mikið er um einstæða foreldra þarna líka. Rónarnir halda sig flestir á Mozarts Plads, en Karen sem lærði með mér úti átti einmitt heima þar og þetta voru nú meinleysisleg grey. Svo skilst mér á þeim sem ég hef spurt að rónaskapur í þessu hverfi sé ekkert meiri heldur en gengur og gerist í öðrum hverfum Kaupmannahafnar!
Við munum gera leigusamning til að byrja með til tveggja ára og eftir þessi tvö ár er víst möguleiki á framlengingu, en það er svo sem aldrei að vita hvað maður gerir. Leigan er 7500 danskar á mánuði, sem er um 150 þúsund íslenskar miðað við núgengi, sem er svipað og fólk er að greiða fyrir 3gja herbergja íbúðir hérna í RVK. Við munum svo sækja um boligstötte sem verður á milli 2 og 3 þúsund danskra á mánuði. Síðan fáum við sjálfkrafa barnabætur, 3500 danskar 4 sinnum á ári og svo var ég að komast að því að sem námsmenn getum við líka sótt um auka barnabætur, auka 1500 danskar 4 sinnum á ári! Ekki ónýtt það.
Það eru 4 vöggustofur og 4 leikskólar í næsta nágrenni og 2 ágætis búðir í göngufæri. Svo er stutt að keyra bæði í Fields og Fisketorvet ef maður þarf að kaupa annað inn - og við tökum bílinn með okkur, liggalá! Tengdó eru jafnvel að spá í að koma með hann í september fyrir okkur og gera sér ferð úr því.
Við leigjum íbúðina frá 1.5. en munum ekki flytja fyrr en um miðjan júní. Núna er því bara næsta mál á dagskrá að skipuleggja fjármálin í drasl (sem er þó langt komið), endurpakka búslóðinni og vera svolítið grimm þegar það verður valið sem fær að fara með. Ekki nenni ég að borga flutning undir pappíra og skrautstyttur sem munu aldrei koma að neinu gagni!
Bjarni er líka búin að setja sig í samband við strák sem hann þekkir þarna úti um að komast í rafvirkjadjobb í smá tíma í sumar og auka enn við varasjóðinn okkar. Hann er orðinn helvíti álitlegur nú þegar, en á meðan Lín er svona lágt veitir ekki af því að búa vel í haginn svo maður verði ekki í peningavandræðum í útlandinu!

Við hlökkum til að taka á móti gestum í nýju íbúðinni okkar -og nú mun fara vel um næturgesti, en planið er að kaupa uppblásið rúm fyrir svoleiðis tilefni - nú og morgunverðarbakka ;)

Jæja, þá er þessari fræðslu lokið ;)

EddaK
- maður kann að bjarga sér!!

PS: Nokkrar myndir:Hérna er húsið, rétt sést í rauðan punkt sem merkir það

Það er stór og góður almenningsgarður rétt við götuna okkar. Svo eru 6 km í skólann minn (neðri mynd)

Stutt í Tivolí ;)

Svona fer maður upp í skólann hans Bjarna




 
//