Nýtt útlit, nýir tímar
Neyddist til að gefa eftir og gerast þátttakandi í nýju útgáfunni af blogger, einfaldlega vegna þess að ég nennti ekki að lesa skólabókina mína lengur. Neyddist í kjölfarið til að kveðja teljarann minn hundtrygga, sem síðan 25. febrúar 2003 hefur talið hverja einustu heimsókn sem hefur hingað inn komið. Á þessum tíma hafa heimsóknir verið 94.622. Bless, góði teljari, við byrjum núna upp á nýtt.
Bakgrunnsmyndin er tímabundin. Ætla mér að teikna sjálf eitthvað rosalega fallegt með tíð og tíma.
Ég er annars að fara í próf á miðvikudaginn. Ég á eftir að lesa 105 blaðsíður af torfi. Leshraðinn er um það bil 10 blaðsíður á hverjum 18 mínútum. Ég á því eftir að lesa í um það bil 189 mínútur til að klára pensúmið og þá taka fyrirlestrarnir við. 189 mínútur eru 3,15 klst. taki ég öngvar pásur. Ekkert óyfirstíganlegt, en ég tek bara svo margar pásur...
Eftir ofát páskanna tekur nú við heilsusamlegra líferni með miklu spínati og miklu vatni. Súkkulaði er komið á bannlista og hvítt brauð líka. Ætla nú að vera í bíkiníformi þegar ég fer með snúðunum mínum á ströndina í sumar, annað er nú ekki hægt. Einhvern veginn verður maður líka að bæta fyrir þessi blessuðu slit sem eru einum of heimakær á kroppnum á mér, og engin önnur leið fær en að vera í fantagóðu formi. Nú þarf ég bara að sannfæra bragðlaukana og munnvatnsframleiðsluna um að súkkulaði sé ógeðslega vont.
Markmiðið er 60 kíló fyrir skólabyrjun í haust, 62 fyrir 17. júní og 65 fyrir lok apríl. Er 66 í dag (sjitt, þarna kjaftaði ég af mér), sem er það sama og ég var áður en ég varð ólétt (jibbý!!).
Ókei lömbin mín,
vinsamlegast skiljið eftir einhverja minningu um að þið hafið verið hérna, til dæmis komment. Þykir mjög vænt um það þó að Facebook sé óvinur bloggarans númer 1.
Bless
EddaK
-nýungagjörn.

4 whispers:
Þú ert með sniðugt heilsumarkmið. Er að hugsa um að herma það nákvæmlega eftir þér þar sem ég er nákvæmlega jafn þung og þú ert núna :D
ég get svarið það, ég var þunn í dag eftir sykurát gærdagsins... spínat og vatn hljómar mjööög girnilega eftir þetta súkkulaðifyllerí! ;)
já Birna heyrðu nú getum við stigið þetta í takt ;)
En já sykurát skilar manni nefnilega ágætis skammti af vanlíðan á pari við þynnku... er samt skrýtið að ég skuli fá vatn í munninn bara við að skrifa orðið "sykur" ? ...
hehe ... sykur sykur. Maður er búin að vera á súkkulaðifylleríi aðeins of lengi núna finnst mér og svo sagði Hildur systir mér í dag að þau væru að SPARA að opna eitt páskaegg þangað til ég kem í heimsókn í næstu viku... jæks. En já verður maður ekki að vera í bikiniformi þegar maður getur farið á ströndina heima hjá sér ... held það:)
Jú Helga það er skylda að vera í bikiníformi ... það var helvíti erfitt þegar ég bjó á Öresundsvej með 7/11 öðrum megin og ströndina hinum megin -og ég get sagt þér í óspurðum að ég fór mun oftar í 7/11 heldur en á ströndina :-o !
Sendu inn athugasemd