miðvikudagur, apríl 15, 2009

Vandræðalegar aðstæður

Það er viðgerðarmaður heima hjá okkur núna að gera við þurrkarann. Hann segir ekki neitt og ég segi ekki neitt heldur. Ég er búin að bjóða honum kaffi, sem hann afþakkaði. Núna situr hann og skoðar þurrkarann okkar án þess að gera neitt og það eina sem heyrist er tifið í lyklaborðinu mínu. Hvað á maður að gera í svona aðstæðum? Þögnin er á góðri leið með að verða á þyngd við farþegaskip og ekkert hægt að gera til að losna við hana. Þetta er bara vandræðalegt.

Ég er að fara í próf í kvöld. Á einum sólarhring hefur mér tekist að lesa tæplega 100 blaðsíður, á nú einungis 25 eftir og svo nokkrar glærur. Af því tilefni er ég að horfa á nýjasta House. Maður verður svo gáfaður af því að horfa á House og ég er viss um að ég fæ hærra á prófinu bara af því að ég horfði á House.

Núna er viðgerðarmaðurinn að opna töskuna sína og skríður á gólfinu otandi skrúfjárni í bakið á þurrkaranum. Á ég að hafa einhverjar Freudískar áhyggjur?

Jæja, 5 mínútur eftir af gáfumannaHouseþættinum og 25 blaðsíður - ég massidda.

EddaK
- vandró?

4 whispers:

Dagný sagði...

blabla

EddaK sagði...

lkadjflkja

Nafnlaus sagði...

v

Nafnlaus sagði...

Hahahaha... þetta er bara of fyndið !!

 
//