fimmtudagur, maí 28, 2009

Change of plans!

Erum ekki að fara til DK 30. júní eftir allt saman. Stundum breytast hlutirnir bara og ekkert við því að gera annað en að aðlaga sig að breyttum aðstæðum.

Við erum samt að fara! Dagsetningarnar færðust bara.

Færðust bara fram, það er að segja.

Bjarni fer næsta sunnudag. Ég og Freydís förum 9. júní.

Bjarni var búin að vera með vinnu í sigtinu en óvíst hvort að hann gæti fengið hana. Við vorum samt búin að búa okkur undir það að geta stokkið af stað með litlum fyrirvara og búin að koma búslóðinni svona að mestu í flutningshæft horf. Svo fær hann símtalið á mánudaginn um að hann geti bara keypt sér flugmiða út og við höfðum sem sagt um 24 tíma til að koma öllu saman og niður í Samskip, en þeir loka fyrir móttöku búslóða klukkan 16 á þriðjudögum.

Við tækluðum þetta svo KEPPNIS. Erum svo fullorðin - killer team ég og Bjarni.

Á mánudagskvöldið var Bjarni í því að bera búslóðina sem var hjá tengdó niður í bílskúr svo hún væri gúdd tú gó þegar við kæmum með vörubílinn daginn eftir. Á þriðjudagsmorguninn hentum við öllu niður í hol hérna sem á annað borð átti að fara í skipið. Við vorum sveitt og falleg, bæði með ljótuna fyrir allan peninginn, og barnið ekki á því að gefa foreldrum sínum vinnufrið (and why should she?) þannig að Amma Kiddý kom og sótti litla sólargeislann og tók hana með sér uppeftir svo við gætum klárað okkar dæmi í hvelli. Áfram sveitt, áfram subbuleg og áfram vinnandi alveg í átjánda gír tókst okkur að koma öllu flutningshæfu í horf. Svo brunuðum við og sóttum bílinn, Óttar meiraprófari kom og keyrði hann fyrir okkur, og brunuðum upp í Jóró. Og það var HLAUPIÐ. Við hlupum með kassa eftir kassa, sófaeiningu eftir sófaeiningu, dýnu eftir dýnu, úr bílskúrnum og upp í bíl. Þetta tók okkur held ég 20 mínútur sem hlýtur að vera algjört fjandans met, enda voru allir enn sveittari og fallegri eftir að þetta tók af. Svo brunuðu Bjarni og Óttar heim og skveruðu draslinu þar í bílinn og á meðan fór ég niður í Samskip til að athuga hvort ég gæti gert eitthvað til að flýta fyrir. Svo var ekki.

Bjarni og Óttar voru komnir niður í Samskip klukkan hálf fjögur takk fyrir pent og þá átti eftir að raða öllu helvítis draslinu á bretti. Bjarni púslmeistari tók sig til og kom þessu á 2 bretti á viljastyrknum einum saman held ég bara - það var eitt sófahorn sem trónaði þarna heldur vafasamt efst á seinni pallettunni og sú leit út fyrir að vera bara skúlptúr á einhverju listasafninu heldur en beinlínis palletta stútfull upp í rjáfur af öllum okkar veraldlegu eigum.

Skrifstofan lokar klukkan 16:30 þarna í Samskipum og við áttum eftir að borga. Klukkan 16:27 hendist ég upp í bílinn, keyri þessa 300 metra að skrifstofunni og hleyp að hurðinni. BÆNG. Búið að læsa. Sem betur fer vissu þeir af okkur (vildu ekki missa af peningnum sjáiði til!) og það var önnur hurð sem ég gat farið í gegnum. Ég settist rennisveitt og eflaust afar illa lyktandi á móti greyið manninum sem var núna skikkaður í smá yfirvinnu að taka við greiðslu og tryggingu frá okkur og kom ekki í ljós að hann þurfti að púsla dálítið fyrir okkur. Við höfðum nefnilega fengið tilboð upp á flutning á 4.5 rúmmetrum og héldum að við værum að fara með svo mikið. En svo tínist alltaf eitthvað til og á endanum voru þetta 6.7 rúmmetrar. Við erum svo með SÍNE afslátt og svo fengum við smá auka afslátt ofan á það og greyið strákurinn mátti hafa sig allan við að græja þetta svo upphaflega tilboðið gilti, bara með auka rúmmetrum. Þessar tölvur vilja dálítið hugsa fyrir mann stundum nefnilega.

En á endanum gekk það og klukkan tíu mínútur í fimm komst hann loksins heim til sín í grill - og töluvert lægri upphæð á debetkortinu mínu eftir þennan aksjónpakkaða dag.

Svo var ágætis spennufall heima hjá tengdó um kvöldið - við föttuðum að við værum í alvörunni að fara eftir eitthvað "akademískt" korter og bara nokkrir dagar eftir á Íslandinu góða.

Núna erum við því að reyna að leyfa öllum að sjá Freydísi sem það vilja, bóka hittinga hér og þar um bæinn og plana hvernig best sé fyrir nýja móður að fljúga með 9 mánaða stýri í morgunflugi með enga kerru.

Skemmtilegir tímar.

EddaK
- you can call me maestro.

2 whispers:

Nafnlaus sagði...

Þið eruð snillingar ! Vel af sér vikið kæra fólk :) Þetta verður bara ævintýri eins og maðurinn sagði hehe knús knús Dagný

Nafnlaus sagði...

Vá það er bara aksjon! Gangi ykkur vel að flytja:) Endilega vertu í bandi Edda þegar þú kemur út, númerið mitt er 53229001! Væri gaman að sjá snúlluna þína, finnst samt smá eins og ég þekki hana pínu er búin að fylgjast með henni og þú svo dugleg að skrifa og setja inn myndir! kv.Helga

 
//