Getting in touch with my feminine side
Ókei. Þið sem þekkið mig vel vitið að ég er ekkert voðalega kvenleg svona dagsdaglega. Yfirleitt læt ég duga að greiða hárflókann, skella á mig maskara og smokra mér í næstu föt sem eru tiltæk á stólnum og ég er gúdd tú gó. Ég hef ekki mikið spáð í útliti í gegnum tíðina, þó að ég eigi mín móment, og er gjörsamlega fullkomið fashion-retard.
En núna, allt í einu, hellist yfir mig óútskýrð löngun til þess að sanka að mér alls konar fegrunarvörum og fylgihlutum. Þetta er gróflega það sem mig vantar (lesist: langar í):
1. Nýr maskari sem klessist ekki eins og fuglaskítur á augnhárunum á mér
2. Augnbrúnagel - mitt er orðið gamalt og drulluskítugt og ætti mögulega að vera með aðvörunarstimpil á sér, enda líklega orðið jafn geislavirkt og Tsjernobyl var árið 1987
3. Belti - nýju gallabuxurnar mínar haldast undarlega illa á mjöðmunum á mér, samt eru þær ekki of stórar, meira eins og hársbreidd of litlar
4. Bolur sem passar við ekki-of-stóru gallabuxurnar mínar
5. Hreinsimjólk - er bara einn fílapensill.
6. Hársprey - ómögulega slétt hár hangir yfirleitt ómögulega slétt í kringum andlitið á mér og fer í taugarnar á mér.
7. Aungskuggar - þegar maður er með græn augu þarf maður víst að nota græna og fjólubláa augnskugga.
8. Fylgihlutir - eyrnalokkar (fröken eyrnalokkatínir HF góðan dag, get ég aðstoðað), hálsmen, hárskraut og svo framvegis
9. Leggings - teygði mínar til óbóta á meðgöngunni og þær urðu aldrei samar aftur
10. Djammjakki - eins og með önnur föt er ég undarlega fötluð þegar kemur að því að velja jakka og veit ekki hvort að dúnúlpan sé nógu hipp og kúl í sumarhitanum
11. Einkaþjálfari - til að ég geti nú passað í öll tískufötin.
Áætlaður kostnaður: Um það bil 60 þúsund. Budget: 5 þúsund kall.
Hmm.
Neyðist til að velja og hafna.
Ætla því að reyna að fjárfesta í eftirfarandi fyrir djammið á morgun:
1. Hreinsimjólk - nei æji nota bara vatn. Strike that.
1. Augnbrúnagel. Kannski selur Tiger eitthvað ódýrt.
2. Hárspreybrúsi í dvergastærð - kannski líka til í Tiger ... eða er ótrúlega búðin ennþá til?
Hmm sleppi augnskuggum... sleppi eyrnalokkum og fylgihlutum...
3. Verð að kaupa belti. Krúsjal að fötin haldist utan á manni á djamminu, með góðu eða illu.
Tími ekki að kaupa maskara, efast um að þeir selji maskara í Tiger sem hafa ekki verið prófaðir á Bengal-tígrisdýrum í útrýmingarhættu...
Slaufa einkaþjálfaranum líka, efast um að mér takist að missa 10 kíló fyrir annað kvöld hvort sem er.
Djammjakki í þessu árferði kostar um það bil handlegg og ef ég leita að djammjökkum í Tiger eða ótrúlegu búðinni ýti ég enn frekar undir annálaða tískufötlun.
4. Bolur sem passar við ekki-of-stóru gallabuxurnar er möguleiki, ef ég finn einn sem kostar minna en 3000 og fari ekki yfir budget.
Sjitt er ég nísk eða skynsöm??
Ég hef aldrei einhvern veginn haft geð í mér að eyða peningum í snyrtidót og föt og er þar af leiðandi aðeins minna kvenleg en ég gæti verið. Sumum hefur alveg fundist þetta vera gúddsjitt quality og mér alveg líka, en ég get verið svo skitsó - eins og núna ... því þegar mig virkilega langar til að líta vel út þá á ég ekki neitt til. Íhuga allt í fataskápnum, máta lopapeysuna einu sinni enn til öryggis og slaufa henni svo þegar ég man eftir því hvað það er heitt inni á skemmtistöðum, mála mig með útrunnu Tsjernobyl-meiki og augnbrúnageli með vafasömum augnskuggum sem eru ekki í stíl, bý til hreiður í hárið á mér og sofna svo með allt saman á mér eftir kvöldið og bæti handfylli af fílapenslum í safnið og lít eðlilega út eins og grýla morguninn eftir.
En nú skal úr þessu bætt, eins og hægt er fyrir fimmara!
Ætla núna að rækta kvenleikagenið í mér svo ég geti miðlað af nýfenginni visku á því sviði til dóttur minnar - einmitt svo hún sleppi við að ganga í íþróttagöllum fram að háskólanámi.
Býst fastlega við að skoða djammmyndir helgarinnar með hálflokuð augun...
Knús
EddaK
-kvenleg

2 whispers:
Ég legg til....
-Hreinsimjólk keypt í Hagkaup, t.d. Nivea ;) eða eitthvað svipað ódýrt og gott
-Augnbrúnagel bara kaupa það í Body Shop :)
-Svo veit ég um eina ódýra tegund af maskara sem eru víst mega góðir samt sem áður... fæst líka í Hagkaup :)
-Svo bara kíkja á boli og jakka í vero moda kannski verður heppnin með þér og þú finur einhvern ódýran og flotta ;)
.... ég veit ég hef slæm áhrif haha... ég hugsa bara "Ég þarf hvort eð er að kaupa þetta einhverntímann;)"hehe
Ég er svo hissa, mér hefur alltaf fundist þú vera svo tip-top með svona hluti. Til dæmis þá varst það þú sem kynntir mig fyrir augnhárageli og sólarpúðri þarna í gamla daga (það síðara er enn í fullri notkun, hehemm) ;)
Snyrtidót er svo fokdýrt að ef maður ætlaði endalaust að eyða peningunum sínum í það þá hefði maður sennilega ekki efni á að borða..
Gosh og Maybeline eru ekki dýrar línur en eru með ágætis vörur. Síðan er um að gera að kaupa sér eitthvað í Clinique eða Estee Lauder þegar þeir eru með snyrtitöskur í kaupauka, oft margt nytsamlegt í þeim ;)
Sendu inn athugasemd