þriðjudagur, maí 05, 2009

Skrautleg helgi að baki!
Jæja þá er að það frá - fyrsta djammið including alcohol frá því að Freydís fæddist - nei bíddu, scratch that, frá því að ég varð ólétt!

Ég dró Sigrúnu vinkonu með mér heim til Þóru vinkonu og þangað mættu Sigrún vinkona hennar sem er frænka Sigrúnar vinkonu minnar (flókið? Try to keep up!) og Brynja vinkona Þóru og Sigrúnar vinkonu hennar sem er frænka Sigrúnar vinkonu minnar. Þóra og Sigrún frænka Sigrúnar eru svo í bekk með stelpu sem mætti næstum sem er líka frænka Sigrúnar vinkonu minnar.
Núna er ættfræðinni lokið.

Við slátruðum ansi miklu hvítvíni og ansi miklu nammi áður en við fórum ansi mikið skrautlegar niður í bæ. Við ákváðum að hefja leikinn á B5 og svo fórum við bara aldrei þaðan ;) Það var mjög troðið þar inni og mjög gaman ! Og mikil prumpulykt líka með reglulegu millibili, sem er um það bil það subbulegasta sem ég hef upplifað á djamminu, aldrei tók maður eftir þessu þegar það mátti reykja inni á skemmtistöðum!
Vinur hennar Þóru átti svo afmæli og bauð henni + fylgdarliði (okkur) í VIP herbergið á B5. Mér leið asnalega þarna inni - kannski af því að ég var töluvert mikið drukkin og Gunnlaugstvíburarnir voru á næsta borði, svo nákvæmlega eins að ég hélt í smá stund að ég sæi tvöfalt. Fleiri þekkt andlit voru þarna inni líka og þegar maður er vanur að eiga heima uppi með sauðsvörtum almúganum var ekki laust við að maður yrði mjög self-concious þarna í hvítu sófunum! En það lagaðist þegar það birtist vodaflaska og orkudrykkir á borðinu okkar ;)

Dagný elskulegasta sótti svo mig og Sigrúnu þegar ég var um það bil að sofna í flottu sófunum og hefði ekki mátt tæpara standa held ég! Og eins gott að hún sótti mig en ég fór ekki í leigubíl heim, því getiði hvað! Ég var læst úti!! Eitt ljóskumóment á ári er nú alveg leyfilegt, en þarna var ég í skrambans klípu. Ég vildi ekki hringja dyrabjöllunni ef barnið skyldi vakna svo ég reyndi að hringja í báða símana hans Bjarna og senda nokkur SMS en ekkert svar! Ég var samt ákveðið mikið kærulaus og fannst þetta ekkert hræðilegt, og þegar Dagný stakk upp á því að ég færi bara heim með henni og fengi að lúlla þar var ég ekki lengi að segja já takk.

Þegar við komum heim til hennar settum við bara Grey's á, kúrðum okkur aðeins undir sænginni og átum súkkulaðisnúð og ég datt út klukkan hálf sex, tveimur tímum eftir að ég lagði af stað heim ;) Alveg eins og sleep-overs í gamla daga!

Þegar ég kom svo heim um hádegið beið Bjarni eftir mér töluvert sposkur á svip - honum fannst náttúrulega óbærilega fyndið að ég skyldi hafa gleymt lyklum. Það er náttúrulega eitthvað sem hann gerir mikið af og pirrar mig alltaf jafn mikið þannig að mín var ansi hreint skömmustuleg þegar ég mætti þessu glotti ;)

Svo eyddum við sunnudeginum bara í göngutúrum og sundi með Þóru, Einari og Emilíu Rut og öll þynnka hvarf í svartasta afkimann í hausnum - þangað sem hún á heima sem sagt - og lét ekki sjá sig meira :)

Mjög hressandi helgi sem sagt!

Nú verður leikurinn endurtekinn á laugardaginn - með lyklum í þetta sinn ;)

Látið svo heyra í ykkur elskurnar!

Knús

EddaK
-hóflega kærulaus

3 whispers:

Nafnlaus sagði...

Jæja ég ætla að prófa að kommenta tilraun númer 109 ;) haha

Ég reyndi að kommenta á ensku færsluna, en það kom eitthvað eigandinn þarf að gefa leyfi fyrir að birta commentið, ég skil ekki held kannski að tölvan mín sé bara eitthvað skrýtin !!!

En allavegana skrifaði ég á ensku voða fyndið að ég mun standa í biðröð f utan bókabúðina með regnhlíf í rigningunni spennt að komast í gripinn !!! :) hehe

Lövins og já sæll hvað mig hlakkar til að fá mér fragole með ykkur skvísum ;) dí ég vildi að það væri laugardagur á morgun helst í gær...

Dagný

Nafnlaus sagði...

Vei virkar ! haha ... greinilegt að það virkar best að gera þetta nafnlaust ;)

EddaK sagði...

heheh já og ég breytti stillingunum líka, núna þarf ég ekki að samþykkja eitt né neitt! :)

 
//