#1.329
Já, svona mikið af vitleysu liggur eftir mig - 1.328 aðrar færslur. Síðasta árið hefur þeim eitthvað farið fækkandi samt, en við bætum úr því samt sem áður.
Allt heilsuátak fór í fokk eftir Hróarskeldu.
Já ég ætti kannski að byrja á því að segja frá því að ég fór á Hróarskeldu! Ég fékk mér föstudagsmiða og var í tæpan sólarhring að veltast um í hlandmettuðu ryki í baðhita og skemmti mér vægast sagt konunglega. Ég sá NINE INCH NAILS spila sem var alveg rugl meiriháttar. Þeir tóku 3 af mínum uppáhalds lögum og ég hneig næstum því niður, ég varð svo veik í hnjánum þegar ég heyrði þau (og nei, ég var bara smá drukkin... ). Ég gisti svo í tjaldi í fyrsta sinn síðan árið sem olían fraus, eða 2003 til að vera alveg nákvæm, og fílaðiða!
En já, átakið fór bara ofan í vasa á meðan á Hróa stóð. Lágpunkturinn var klárlega síðasta miðvikudag, þegar ég borðaði snakk bæði í morgunmat og hádegismat. Ég skil ekki alveg hvað er að mér, ég á að heita fullorðin manneskja og eins og allir vita gera fullorðnir aldrei neitt ábyrgðarlaust eða óhollt (haha). Ég refsaði sjálfri mér fyrir þetta athæfi með því að borða ekkert fyrr en í kvöldmatnum þann daginn og fara í extra langan hjólatúr ásamt labbitúr ... en allt kom fyrir ekki. Líkaminn refsaði mér heiftarlega með því að planta tveimur djúsí og sársaukafullum vinkonum sitthvorum megin við mitt annars fagurlega formaða nef. Áts. Núna erum við svo með heimsókn yfir helgina og það er auðvitað mikið borðað, og svo kemur mitt ástkæra bleika villidýr í nokkurra daga heimsókn á þriðjudaginn og þá verður örugglega enn meira borðað. Hápunkturinn verður svo á fimmtudagskvöldið þegar við förum á Harry Potter í bíó og ef sú sýning verðskuldar ekki eins og einn popppoka þá veit ég ekki hvaða sýning gerir það!
Ég veit það ekki, kannski er óraunhæft að horfa á lið eins og Madonnu og Jennifer Aniston sem eru 50 og 40 ára og skjóta flestum tuttuguogeitthvaðára stelpum ref fyrir rass þegar það kemur að því að vera í góðu formi, en mig langar líííka... á bara aðeins erfiðara með að sætta mig við að þá má maður ekki gera gloríur eins og borða snakk í morgunmat... En þetta kemur hjá mér. Einn daginn. Kannski þarf ég að bíða þangað til ég verð 40 til að vera í formi lífs míns, en ég er það ekki þetta sumarið. Hnuss.
Jæja, þrumur og eldingar hér... eilíflega spennandi. Set endapunktinn hérna kvígurnar mínar.
EddaK
- Back baby!

1 whispers:
I want a new blogg :) miss dí
Sendu inn athugasemd