Að vakna til lífsins
Ég hef aldrei áður upplifað það að hafa ekkert til að skrifa um. Sannleikurinn er samt sá að ég er búin að veraí einhverjum doða undanfarið og lifað lífinu frá degi til dags, alltaf sama rútínan, alltaf sami doðinn yfir heilanum. Ég er ekki búin að nota hann svo lengi, sjáiði til, og þá dettur maður úr æfingu!
En þetta stendur til bóta, skólinn byrjar á mánudaginn. Ég er hins vegar orðin 25 og verð því að gera ráð fyrir því að viðbragðstími allur hafi lengst ... ellikerling er vægðarlaus ;)
Mér hefur liðið síðustu daga eins og allar tilfinningar mínar séu ein, bein, fullkomin, lárétt lína. Það eru engar öfgar í hvoruga áttina, hvorki upp né niður. Þær eru bara eins; engin rosaleg ástríða og engin rosaleg reiði. Ég bara er. Þetta er mjög óþægilegt. Ég er ekki vön þessu. Ég fór að pæla í hvers vegna ég gæti verið á svona emotional lock down og þá datt mér í hug munstur í lífi mínu:
Margir þeir vinir sem mér þykir vænt hafa á einhverjum tímapunkti yfirgefið mig á einvhern hátt. Sumir fóru til útlanda og sumir fóru út á land, sumir eignuðust kærasta / kærustu og sumir bara fjarlægðust. Ég er hætt að leyfa sjálfri mér að finna - svo ég verði ekki sár. Sumra sakna ég greinilega meira en ég vil viðurkenna, því þeir fá sér útrás í draumum og skilja eftir gapandi sár sem þarf að gróa hratt á morgnana, svo tilfinningarnar geti haldið áfram að vera í beinni línu sem breytist ekkert.
Að vera tilfinningalega einsleitur gerir heldur ekkert gott fyrir heimilislíf og samband, eins og gefur að skilja. Ég verð að redda þessu!
Annars sit ég núna í kaffiteríunni á Svarta Demantinum í Köben að skrifa bókina mína. Já, bókina mína. Loksins byrjaði ég aftur í gær, eftir allt of margar vikur í doða og kreatívum drunga. Ég er með playlista í eyruum sem ég setti sérstaklega saman fyrir skriftir og innblástur og þetta virkar bara svona helvíti vel. Strax komin með 11 A4 blaðsíður, þannig að þetta mjakast allt í rétta átt. Ég er að leyfa sögunni að flæða út án þess að ákveða of mikið og njörva mig þannig niður. Mig langar að sjá í hvaða átt hún þróast. Í aðra röndina langar mig mikið að skrifa ævintýrasögu en í hina röndina langar mig líka að skrifa um eitthvað sem ég þekki vel. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta blandast.
Ég hef einn og hálfan tíma þangað til ég þarf að sækja dóttur mína, litla snillinginn, á leikskólann sinn. Elsku barnið mitt.
Hluti af þessu tilfinningafrosti síðustu vikna er líka að mér finnst ég svo ónauðsynleg. Ég vinn ekki fyrir neinum peningum, aðrir passa barnið mitt og sjónvarpið sér um skemmtiatriðin á kvöldin. Ég er obsolete, gæti alveg eins verið bara undir sæng allan daginn. Ég bind miklar vonir við skólann...
Jæja, þetta órökrétta röfl í mér er búið í bili, ég þarf aftur að komast í bloggform!
Kem með almennilegar fréttir bráðum fyrir lesandann minn :)
EddaK
- hugsi

8 whispers:
Hipp hipp húrra!! Þú skrifaðir :D Má lesandi benda á að þú einnig "skildir" fólk eftir....Fjarlægðir eru ekkert til að stressa sig yfir :D
Knús og koss frá Uppsölum
líka það!
=) LÖVJA
Miss Dí
Bíð spennt eftir bókinni! :D
Þessa línu kannast ég sko sannarlega við, as you know probably, vonandi kemstu frá henni, ef svo er þá máttu láta mig vita hvernig ;)
Annars, veistu þeir vinir sem þú átt eftir eru þá þínir alvöru vinir, getur hugsað það þannig !!
En þó þér finnist þú ekki vera að gera neitt þá er það ekki rétt, ég meina barnið er nýkomið á leikskóla og skólinn alveg að fara að byrja, þó þú fáir að eiga smá frí með sjálfri þér, finnst bara ekkert rangt við þetta !!! og hana nú :)
Love ya og miss ya ;)
Íris Thelma
Love ya 'n missa ya too! Já það þarf að segja þessari línu stríð á hendur!!! Bara heimsstyrjöld á móti línunni...
Vonandi verður hægt að koma bókinni út einhvers staðar ;)
Það verður klárlega slegist um útgáfuréttin ;) no worries there my dear darling
Dagný
Knús þig sæta vinkona mín :) ég veit að það er aðeins bjartara yfir þér núna, en við erum saman í þessu í útlandinu og ég er svo þakklát fyrir að þú skildir skilja fólkið þitt eftir heima og komið til mín :) Ég er rosalega heppin:)
Þekki þetta með að leyfa sér ekki að finna, en það er nefninlega svo vont, lífið snýst um tilfinningarnar og það eru þær sem gera lífið að því sem það er! :) Gott eða slæmt, upp eða niður, en þetta er allt partur af tilverunni og það er gott að þú skulir þekkja tilfinningarnar þína :) En mundu að the best is yet to come :) Just have a little faith :)
Hlakka til að sjá þig eftir smá! :D
Sendu inn athugasemd