Daglegt líf númer milljón
Ég er í skólanum. Tíminn byrjar eftir korter samkvæmt stundaskrá, hálftíma samvkæmt akademíska korterinu sem fyrirlesarar gefa sér - í orðsins fyllstu merkingu - til að slappa af, safna sér saman og dúlla sér áður en tímarnir byrja.
Ég er að fara í Shakespeare tíma í dag. Ég hef aldrei verið í kúrs með jafn löngu nafni, en kúrsinn heitir nákvæmlega
Augljóslega get ég aldrei munað allt námskeiðisheitið, þannig að þegar ég fer í tíma þá er ég einfaldlega að fara í Shakespeare tíma til að vera ekki að flækja málið frekar fyrir fólki sem þarf að hlusta á mig.
Ég er ekki farin að kynnast neinum í nýja bekknum mínum - þriðja bekknum á jafnmörgum vikum - enda ekki búin að fara í neinn nafnaleik ennþá ;) Vonandi fer þetta að gerast, ég sé ekki alveg fyrir mér að vera ein að rogast með mitt pensúm, eigrandi um skólalóðina. Sem betur fer get ég enn talað við 'gamla' bekkinn minn og þau eru öll jafn æðisleg alltaf :)
Núna er komin helgi. Ég elska helgar. Ég þarf reyndar að læra helling í málfræðinni, hún er svo snúin, en plönin þessa helgina eru ekki af verri endanum: Stórþrif á íbúðinni (insert happy dance), saumó eða kaffó með Supriyu og lítið miniferðalag með ástinni minni og unga. Við ætlum með lest að heimsækja Virum, þar sem Bjarni bjó þegar við hittumst fyrst, og taka með okkur nesti og nýja skó og trítla þarna um hálfan dag eða svo. Svo fer ég í CrossFit á sunnudagsmorguninn. Ég elska Crossfit. Það er frábært. Ég er að byrja 3 vikuna mína núna og ég er farin að sjá árangur :) Hef ekkert vigtað mig eða mælt í 2 vikur núna, en ég finn að mér LÍÐUR betur, og það er sá árangur sem ég vil sjá! Allt annað er bónus. Það hlýtur samt að vera ansi skondið að sjá mig þarna með ólympíska lyftingastöng með varla neinni þyngd, en það kemur! Ég bæti mig í hverri viku hvað varðar þyngdina sem ég lyfti og það er líka allt sem ég vildi sjá.
Lífið er gott núna.
Litla músin mín er yndislegust og duglegust, og maðurinn minn er fallegastur, bestur, þolinmóðastur og skilningsríkastur. Það er gott að vera til í dag.
EddaK
- Í góðum farvegi

“So much against the mettle of your sex,/So far beneath your soft and tender breeding...”: Shakespeare’s boy heroines."

0 whispers:
Sendu inn athugasemd