Á meðan kallinn gengur frá eftir matinn ætla ég að pára niður nokkrar línur, bara svona til þess að gera það.
Ég ætla að kynna hann fyrir True Blood núna seinna í kvöld - Freydís á svo bágt með tanntökuna sína að öll fögur fyrirheit um lærdóm verða hreinlega að víkja fyrir þessum stórskrýtna vampýruþætti. Ekki kvarta ég, allt sem slær raunveruleikanum á frest þegar maður er svona þreyttur í hausnum er gott í mínum bókum :)
Við erum búin að fá Yota til okkar og hafa hann í heila viku. Við erum búin að rúnta hingað og þangað um Köben með honum og fengum lánað GPS tæki okkur til halds og trausts fram að jólum - væri leiðinlegra að villast á leiðinni í Bakken og enda óvart í Belgíu - eða er það ekki?
Ég er svo að fara að heimsækja nýbakaða mömmu á morgun! Hún María Anna vinkona úr kórnum eignaðist litla sæta stelpu 27. júlí. Það er svo langt síðan ég hef haldið á svona litlu beibí, þetta á eftir að vera stórfurðulegt. Minn litli skæruliði er svo fjandi fyrirferðarmikill - hún er farin að standa sjálf, borða sjálf, tala á milljón, skríða enn hraðar, leika sér með dótið sitt eins og sannur atvinnumaður og lærir liggur við eitthvað nýtt á hverjum degi. Svo ryðjast svoleiðis fram úr henni tennurnar og hún er núna komin með 10- það komu 5 á einni viku, takk fyrir og bingó, þar af 3 sömu helgina og 2 jaxlar sama korterið! Það er 100% aukning gott fólk. Eitthvað er þetta að hrjá hana núna greyið því hún átti voða bágt hérna í kvöld - vonandi koma tönn 11 og 12 ekki báðar í einu líka, nógu mikið er á hana lagt samt.
Jæja, nóg í bili - nóg að gera á morgun; CrossFit klukkan 10 og svo keyrsla með lítinn tanngrís klukkan 14!
EddaK
-safnar vetrarforða

0 whispers:
Sendu inn athugasemd